..:: Hin Heilaga Þrenning ::..

..:: Hin Heilaga Þrenning ::.. -

17.08.2007 14:12:21 / Ziggalius

THE END

Enginn tilgangur með þessari síðu þannig að hér liggja mörkin for now.


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 21:40:24 / Robertino

London baby

Jæja elsku drengirnir mínir ég veit þið eruð farnir að sakna mín en ég er kominn með aðra síðu sem ég ætla að nota meðan ég verð hérna úti í Oxford. Þannig að þið getið frétt af mér í gegnum hana. Það er svo rosalega dýrt að hringja milli landa.

                                          olafsson.wordpress.com


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 14:34:57 / bosi

Ísmaðurinn.................

Sá einhver af ykkur,lesendur góðir þáttinn um ísmanninn á Grænlandi sem var á rúv um daginn?

Þvílíkur snillingur:D

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=209372

Hérna er smá sýnishorn af þessum merka manni í rituðu máli

Kommentið svo um það hvernig ykkur líkar;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 20:51:16 / Robertino

Bara fyrir þig Steini

Það er svosem lítið að frétta af okkur nema það að Siggi okkar er búinn að stunda threesome með ''villtum, heitum gellum''. Þannig að við (róbert, andri, thomas og irma) erum ekkert búinn að sjá né heyra í pilti í nokkra daga.

Mér skilst það að Yxna haldi uppi stuði annan i jólum á Vopna, og hljómsveitin Glys haldi upp stuði á hetjunni hér á egilscity annan í jólum, erfitt val þar á ferð..... ætli maður missi ekki af Yxnu þriðja árið í röð.

Mr. Garrison: How would you like to go see the school counselor?
Cartman: How would you like to suck my balls?
Mr. Garrison: What did you just say?!
Cartman: Oh, I'm sorry (Clears throat and pulls out megaphone), actually what I said was, "How would you like to suck my balls, Mr. Garrison?"

Mr. Garrison: Does anyone know what sexual harassment means?
Cartman: When you are tying to have intercourse with a special lady friend and some other guy comes up and tickles your balls from behind.

Jewish Kid: Is anyone else having problems concentrating on this? I just can't seem to concentrate.
Cartman: Maybe we should send you to a concentration camp.

Cartman: I would never let a woman kick my ass. If she tried something, I'd be like, HEY! You get your bitch ass back in the kitchen and make me some pie!

                          

                                                      Svona kom ég að þeim í RVK

                                                         njótið vel og góðar stundir


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 11:17:21 / Robertino

Vantar þig hest?

Síðustu 2 vikur eru búnar að einkennast af: miklum kulda, miklum vindi, ísingu og mikilli bleytu!Ég er viss um að það var -20°C á okkur og síðan fór vindurinn uppí 35m/s! Þetta var án efa einn leiðinlegasti tími lífs míns! Mér hefur aldrei verið jafn kalt,endalaust blautur,stóð ekki í lappirnar allan tíman og lenti í brotsjó sem þeytti mér marga metra þegar ég reyndi að komast í skjól! Það eina sem ég uppskar af þessum túr var gat á hausinn og smá peningar, ekki þess virði. Krakkar mínir lærið af þessu og farið ALDREI á sjó! Minni sjómennsku er hér með lokið.

En ástæðan fyrir þessari færslu var ekki að væla og vorkenna sjálfum mér heldur var hún þessi http://forum.dailyhaha.com/forum_posts.asp?TID=413

Ég ældi úr hlátri þegar ég horfði á þetta. Alveg pottþétt að maður fari á Borat þegar maður fer suður í næstu viku eftir að hafa séð þetta viðtal við þessa persona

                                             Góðar stundir


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 14:54:35 / bosi

Spilakvöld

Í fyrrakvöld fórum ég,robbi,siggi og Guðbjörg í spilið 10,það var mikil skemmtun og fór svo að siggi og robbi enduðu jafnir í lokin,og skoraði robbi á sigga um að spila idiot upp á sigur,og greiið hann siggi vissi ekki hvort hann var að koma eða fara:).

Síðar um kvöldið komu tommi og magga og fórum við þá í party og co!!

Þar fóru robbi og siggi fremstir í flokki,alveg óborganlegir,robbi átti að leika saga(að saga)en nei,hann lék námsefnið sögu:haha:,góður robbi

ég og siggi vorum saman í liði,og átti ég að lýsa fyrir honum himinlayafjöllum,og með fullt af bannorðum auðvitað,ég sagði honum að þetta væri landsvæði með hæðsta hæðarpunkti(evrest)á jörðinni,siggi skaut á Danmörk8|,

Ég og steini bjarka ætlum að skella okkur á húsbandið í höllinni í lok nóvenber,gæti orðið hin mesta skemmtun,er það ekki?

hlakka til að mæta í afmæli hjá þér kolla(og sigfríð)

Andrinn kveður


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 14:09:11 / bosi

HVERT VEIT HÚN ER AÐ FARA........................

Komið þið sæl,ætli Trekanturinn sé ekki risinn upp frá dauðum.En eins og titill þessarar blogg færslu er nú merkilegur,þá voru ég,robbi,siggi og guðbjörg að horfa á mynd í gærkvöldi.

Myndin heitir silent hill og er gerð eftir tölvuleik,og var hún skal ég seigja ykkur bara ágætis afþreying,en þessi fleyga setning "hvert veit hún er að fara"var kastað fram þegar myndfin var í gangi,og ætla ég að leyfa ykkur að giska á hver það var sem orðaði þetta svona skemmtilega.

Robert er að fá til sín gesti um helgina og eru þar á ferð hjörtur og reynir,að ég best veit,ætla þeir félagar að fara út að borða á hótel héraði

Svo verður eflaust fengið sér í annan fótinn,héld samt að það sé hentugra að ég fái mér í annan handlegginn,það kemst svo mikið í hann:haha:

en allavega,þá skora ég á hjört að malla fyrir okkur strákanna áfengishlaup,eins og hann bauð okkur uppá í áramótateitinu um árið


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 19:33:00 / Robertino

The great gig in the sky

Ég rakst  á svona andskoti skemmtilega reggae útgáfu eða eitthvað svoleiðis af  ''the dark side of the moon ''. Ég finn til með ykkur ( frekles) sem þekkja ekki til '' The Dark Side Of The Moon ''

Only for you pokabjörn and HH.

Enjoy

http://www.easystar.com/dubfeatures3


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 15:05:48 / Robertino

írakabakarí

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 01:15:20 / Robertino

ó Akureyri þú fagri staður

18.05.06. Klukkan er 00:29 þegar höfundur byrjar að rita eftirfarandi á síðuna frá Akureyri:

Mánudaginn 15.05.06.  Það gerðist ekkert fór í ræktina og var heima að bora í nefið.

Þriðjudagurinn 16.05.06. Fjölskyldan kom, Eftirfarandi gerðist á milli 13:00-20:30.

  • Hitti Móðir vor fór með henni til að hitta frænku mína hjá tannlækninum
  • Keyrðum frænku minni (hrönn) á spítalan í skoðun
  • Hittum Afa þar hann var búinn að vera hjá lækninum
  • Mamma og Afi rifust útaf heilsufari ömmu, ég hlustaði
  • Amma kom til okkar,var ekki búin þurfti að fara í frekari rannsóknir
  • Biðum á spítalanum eftir ömmu
  • amma búin í rannsókn, fórum á rúntinn
  • Hrönn búin að láta skoða sig
  • Fórum að borðaá Greifanum, ég fékk mér 200g hamborgara og frænka mín vildi endilega að amma myndi nú fá sér kólestrólsprengju, ''gleymdi ''því að hún værir hjartveik
  • Fórum þá að versla ég og afi settumst niður og spjölluðum saman (reyndum)um hvað kjellingar eru lengi að öllu og hvað þær geti endalaust dundað sér í búðum ásamt heimsmálum dagsins.
  • Afi heyrði ekkert í mér og við vorum aldrei að tala um sama hlutinn nema þegar hann sagði mér hvað hann væri fílhraustur að sögn læknanna
  • Þær kláruðu loksins að versla fórumá kaffihús að éta meira
  • Fjölskyldan fór frá akureyri og ég skrapp í ræktina

Miðvikudagurinn 17.05.06.

  • Vaknaði klukkan 10:00  fór aðeins að líta á handbók flugskólans og rifja upp  hvernig maður ætti að starta flugvél
  • 12:00 ég fór í skólan og var kominn í loftið 12:29 tók þessar hefðbundnu æfingar og fór í snertilendingar kominn á jörðina 13:54
  • Gekk allt eins og í sögu að sögn kennarans, þetta er eins og að læra að hjóla maður gleymir því aldrei ég var samt ekki búinn að snerta flugvél síðan 17. sept. 2005 það eru 8 mánuðir að ég held
  • Fór og fékk mér að éta og síðan beint í ræktina
  • Fór í heimsókn til Einars vísindafugls við spiluðum á gítar og sungum
  • Kom heim talaði við fólkið sem býr hérna og það fór að sofa
  • Ég er einn eftir og er að Blogga!!! Það er svo lítið að gera að ég er farinn að blogga eins og ég eigi lífið að leysa
  • Skoðaði bloggsíður hjá flestum á austurlandi og á hverri bloggsíðu er minnst á Pétur ''Litla'' Það greinilegt að allt austurland er í sorg ekki bara Egilscity.
  • Það var ''Kertfleyting''  á Tjarnargarðinum og mættu margir til að lýsa Pétri vegin heim. Fallega gert af fólkinu sem stóð á bak við það. Síðan var haldin bænastund.Ég komst því miður ekki.
  • Vonum að hann skili sér heim

Þetta er spennandi líf sem ég lifi!!! Sigurður er e-ð að pæla í það að koma á sunnudaginn til mín eða ég vona það áður en ég læt lífið.

p.s. Siggi geturu ráðið þetta stafa rugl? eða bara getur einhver ráðið þetta stafa rugl

                                            ''jnaroetbrrbar''

Mjög einfalt þetta er samt í tvennu lagi fyrst x-e-ð og svo x-e-ð

Höfundur kveður ykkur á þessum nótum á þessu dimma drungalega kveldi í þessum einmannalega heimi.


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 14:43:30 / Robertino

Helgin.....

Þetta var vægast sagt ein eftirminnilegasta helgin sem við félagarnir höfum upplifað.Þetta er mín besta og versta helgi soðin saman.

Þetta byrjaði allt á því að föstudaginn 12 maí vaknaði ég til að fara læra undir síðasta prófið. Síðan klukkan 15:40 local þá fór ég í prófið og gerði enga góða hluti þar. Við fórum í ríkið eftir að ég var búinn í prófinu og birgðum okkur upp af vökva.

Síðan um kvöldið vorum við hjá Sigga að drekka og skemmtum okkur konunglega Siggi hélt upp fjörinu með gullmolum að hans hætti, reyndar vorum við Dandri ekkert skárri. Síðan lá leiðin á Ball á Seyðisfirði með Jet black Joe. Við fórum á tveimur bílum á sumardekkjum og stoppuðum á leiðinni upp. Það var orðið svo hált að bílarnir neituðu að fara lengra og urðum við að snúa við. Ég og Siggi vorum komnir í fluggírinn og þvertókum fyrir það að gefast upp. Eftir mikið nöldur í systur minni þá ákvað hún að keyra okkur á jeppanum sem moms og paps áttu.

Á ballið komumst við og skemmtum við okkur frábærlega minnir mig. Það var alvega allt troðið þar en gárungar segja mér að hljómsveitin hafi verið ömurleg. Á þessu Balli reyndi Palli Rós við systur mína og söng e-ð væmið og fallegt lag til hennar. En hún vildi ekkert með hann hafa. Síðan fórum við til Sigga eftir ball og dápumst við þar

Laugardagurinn 13 maí.

Þetta er án efa besti laugardagur sem hefur verið í sögu mannkynsins. Liverpool varð bikarmeistari!!! Við vöknuðum klukkan 13:00 og fórum á kaffi Nielsen til að horfa á leikinn þar sem Liverpool menn ætluðu að hittast og horfa á leikinn ég var glærasti maðurinn á svæðinu. Fólk sá í gegnum mig og hafði orð á því hvað ég væri tussulegur.En ég hressti allur þegar leikurinn byrjaði.Hamrarnir komust í 2-0 yfir og vorum við Liverpoolmenn orðnir áhyggjufullir. Síðan var það 2-1, 2-2 og þá komust Hamrarnir í 3-2og við héldum að allt væri tapað. ÉG var farinn að fá tár í augun og byrjaður að blóta og urra á fólk. Síðan gerðist það sem engin getur nema þetta goð.

Í viðbótartímanum á 90 + mínútu þá steig fyrirliði Liverpool (Steven Gerrard) upp og hamraði boltanum á 30 metra færi í netið.................. Við höfðum náð að jafna við öskruðum og hoppuðum í margar mínútur meirað segja Siggi selur sem er man utd fan öskraði og fagnaði. Í framlengingunni þá skoruðaði hvorugt liðið og fór þá fram vítaspyrnukeppnin, Þetta minnti óendalega á istanbúl.

Var spennan orðin svo mikil að menn voru ekki að höndla þetta hjartað í mér var að gefa sig, Jose Reina markmaður Liverpool var hetjan okkar í vító og varði 3 spyrnur Hammrana, það var orðið ljóst....... Við vorum búnir að vinna Bikarinn gríðarleg fagnaðarlæti brutust út meðal Liverpool manna og hjá okkur líka ég var orðinn raddlaus ásamt fleirum.

Um kvöldið þá fórum við félagar í sitthvora átt Siggi var búinn að vera að sulla með Eika titt allan daginn og var hann búinn að líma sig á Sigga, og þar með sat Siggi uppi með hann allt kvöldið. Ég var að drepast úr  þynnku og vissi ekki hvað ég ætlaði að gera Þá hitti ég Freckles og Tinnu og þær sögðu að ég mætti kíkja á þær sem ég gerði eftir langa íhugun. Ég sagði Sigga frá þessu og hann var alveg til í að koma með mér en Eiki var búinn að líma sig á hann og ég nennti ekki að standa í neinu veseni þannig að ég sagði við Sigga minn að ég nennti ekki að fá hann ( Sorry elsku kúturinn minn) Siggi var pínu sár en endaði svo á því að fara í e-ð risa afmæli með Eika og voru þar fríar veitingar þannig að hann gleymdi þessu fljótt.

Ég fór hinsvegar í Fellabæ í pottin og reyndi að koma áfenginu mínu niður. Það gekk frekar erfiðilega fyrst en hafðist á endanum. Í pottnum komst ég að mörgum skemmtilegum hlutum um þær. Nú veit ég hver dypstu leyndarmál þeirra er muhhahahaha og þær treysta mér af öllum mönnum í geiminum:klikk:

Neinei að öllu gamni slepptu, þá fórum við síðar á hetjuna( eftir að Tinna var búin að sparka í alla ljósastaura sem urðu fyrir vegi okkar á leiðinni á hetjuna) að dansa við einhverja tekknó trans jungle hardcore tónlist sem  er í uppáhaldi hjá mér eins og allir vita. Þar hittum við Sigga sem var orðinn alveg blekaður, ég tók nokkrar fallegar myndir af honum á hetjunni á klósettinu ef einhver hefur áhuga geta ég sent viðkomandi.

Þar dönsuðum við trylltan ''hamar og sög'' dansinn og ''stera'' dansinn. Mér fannst það tilvalið að kenna Egilsstaðar/fellbæjingum að drekka sambúkka brain damaged drykkin og var siggi fyrstur að prufa, eins og hann er þá kveikti hann í hendinni á sér........ Maður á sem sagt að kveikja í drykknum setja hendina yfir glasið, þá myndast þrýstingur þegar slökknar í eldinum  og  festist glasið við lófan og þá hristir maður það og drekkur um leið og maður sleppur því, en nei Siggi hann hellti yfir alla hendina á sér meðan það var eldur í glasinu og hljóp og öskraði útum allt eins og hæna sem er nýbúið að höggva hausin af. Eftir að hafa hafa drukkið MARGA svona drykki þá breyttist ég í portúgalfaran ógurlega og þá var fjandinn laus áður en ég vissi af þá var ég vissi af þá var ég farinn úr öllum fötunum syngjandi og trallandi farinn að segja e-ð við ákveðna aðila sem ég hefði betur sleppt og ýmislegt fleira...........:^)

Síðan vaknaði ég hjá Sigga ógurlega slappur á bömmer aldarinnar. Ég er búinn að ákveða það að halda mig frá sambúkkanum það er það sem gerir mig klikkaðann!!!

En já á sunnudaginn þá var ég búinn að plana að fara til Akureyrar að klára flugið. Og náði ég að sannfæra Andra og Sigga að koma með mér fara í bíó og svona og þeir slógu til og komu með. Við fórum á Mission impossible 3 og kom hún skemmtilega á óvart hún var bara mjög góð.

Síðarn eru þeir farnir aftur á Egilscity og ég er hér einn á akureyri að bíða eftir að Alfreð davíð og Alfreð Bjarni komi úr 100klukkutíma skoðunninni það verður ekki fyrr en á miðvikudag þannig ég hefði átt að drífa mig aðeins meira!!!!!

Jæja þetta er orðið rosalega langt og leiðinlegt og ef þú nenntir að lesa þetta ertu ruglaður/rugluð! 

Eitt að lokum María bekkjarsystir mín ,frænka og systir Andra var að eignast stelpu um klukkan 14:00. Til hamingju með það

 

                            Ég kveð að sinni, tilvonandi captain Ólafsson


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 17:54:10 / Robertino

We are the champions!!!!!!

Við erum F.A. Bikarmeistarar árið 2006!!!!!

Liverpool Vann West ham í þessum Magnþrunga dramatíska Leik og vil ég óska öllum L.F.C. aðdáendum til hamingju

hér eru myndir af þessum einstaka sigri LFC-manna


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 22:50:30 / Robertino

Prófvika 2

Þetta er orðið rosalega þreytt, þessi endalausu próf og maður er svo samviskusamur að læra undir þau. Lífið var einhvernveginn miklu betra þegar maður var yngri og kærulaus. Lærði aldrei undir prófin mætti fullur í prófin, seint og illa og manni var alveg sama ef maður myndi falla. Hér situr maður gamall, þreyttur og kominn með viðbjóð á því að læra, gerir það samt og með áhyggjur á því að falla. Ég þykist vera að læra undir stærðfræðipróf en nenni því svo öngvan veginn að ég ákvað að blogga meira segja og þegar ég er ekki að blogga, standa upp til að éta eða fá mér pásu  þá hringji ég í fólk til að spjalla í þeim eina tilgangi að sleppa við að læra! Mig minnir að hann góðvinur minn Freud hafi einmitt sagt að ''þeir sem nenna ekki að læra undir prófin og eru að gaufa við það, þeir girnist ekki mömmu sína''. Hann var svolítið spes hann Freudarinn hann hafði mömmuáráttu. Þetta var sálfræðingurinn minn að segja mér í símanum rétt áðan um ævi og líf Freud´s.

Sunnudaginn 07.05.06 þá lærði ég frá 1400-0230 (með tilheyrandi sjónvarpspásum,gítarpásum, matarpásum og fleiri pásum) en engu að síður þá lærði ég mikið undir þetta próf og til hvers? Nú til að mæta í þetta ljóta íslenskupróf og skíta á mig uppá bak!

Mánudagurinn 08.05.06 Fyrir utan það að skíta á mig í prófinu í morgun og reyna að læra undir annað ''as im writing'' þá fór ég í sund með ''freckles'' í dag og síðan analyse- aði ég hana og ég held hún hafi farið í pínu fýlu en svona er þetta bara. Það var 22 stiga hiti í dag eða svo stóð á mælinum hjá orkunni í dag ég held að hann hafi verið bilaður og það hafi verið einungis 17 stiga hiti, ég er viss um það. Það var alskýjað og skýjin virkuðu eins og pottlok og héldu hitanum og mengunninni inni, ég kafnaði næstum af menguninni hér á Egilscity. Þetta er skrýtið.

                                         Ský

  • Ský eru raki sem hefur þéttst og orðið að örsmáum vatnsögnum eða ískristöllum
  • Öll ský verða til vegna kælingar lofts niður að daggamarki.
  • Gerist við:
  1. Loft stígur upp og kólnar innrænt
  2. Loft kólnar vegna leiðni við jörð

 

Já þannig er nú það krakkar mínir. 

                                         Happy learning     

                                        Roberto Martinez

                                 

 


» 18 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 10:00:51 / Robertino

Hinn fullkomni dagur......................

Hinn fullkomni dagur í lífi EKTA kvenmanns!

8:15 Vakna við að vera föðmuð og kysst
8:30 Er 5kg léttari en í gær
8:45 Morgunmat í rúmið, morgunkorn og ávexti
9:15 Fara í heitt bað og hlusta á Willham Young
10:00 Léttar æfingar í líkamsræktarstöðini með myndarlega og fyndna
þjálfaranum.
10:30 Hand-, andlit- og fótsnyrting á rándyrri snyrtistofu
12:00 Fara á kaffihús með bestu vinkonunum
12:45 Sé kærustu fyrrverandi kærasta míns... hún hefur fitnað um 15kg!
13:00 Versla með vinkonunum og það er endalaus heimild á kortinu
15:00 blundur
16:00 4 tylftir af rósum sent heim frá ónefndum aðdáanda.
16:15 Léttar æfingar og svo í róandi nudd.
17:30 Velja föt fyrir kvöldmatinn og standa fyrir framan spegil.
19:30 Matur við kertaljós með kærastanum
22:00 Heit sturta (ein)
22:30 Njóta ásta
23:30 Krúttlegt spjall og knúserí
23:55 Sofna í faðmi hans

Hinn fullkomni dagur í lífi EKTA karlmanns!


6:00 Vakna!
6:15 Blowjob.
6:30 Skíta alveg svakalega meðan maður les íþróttasíðurnar í mogganum og DV
7:00 Morgunmatur, lambafillet og egg, ristað brauð og kaffi.
7:30 Limmósía kemur og skutlar manni útá flugvöll, fríir drykkir alla leið.
8:15 Hljóðfrá einkaþota til bandaríkjana, graðar unglingsstúlkur með í för
9:30 Ferð með þyrlu á flottasta golfvöllinn
9:45 Klárar fyrstu 9 holurnar á 2 undir pari
11:45 Hádegismatur, 2ja tommu þykkar svínasneiðar og 3-4 bjórar
12:15 Baknudd og blowjob.
12:30 Klárar seinni 9 holurnar á 4 undir pari
14:15 Limmosía útá flugvöll, fríir drykkir
14:30 Ferð með einkaþotu til Bahamas, blundur á leiðinni
15:15 Sjóstangveiðikeppni þar sem allir aðrir keppendur eru berbrjósta
kvenfólk
16:30 Nytt heimsmet, 340p lax halaður inn á 2mín
17:00 Einkaþota heim, erótískt nudd í boði Cameron Diaz... kemur í ljós að
hún kyngir
18:45 Skíta, sturta og rakstur. Ath skilaboð á símsvaranum: nytt starf með
fjórfaldar núverandi tekjur, íslensk getspá að staðfesta lottovinninginn og
boð í enn eitt kynsvallið hjá playboy .
19:10 Horfir á fréttirnr á allir leiðinlegustu pólitíkusarnir eru að segja
af sér
19:30 Kvöldmatur: 10kg nautasteik með bökuðum kartöflum og bjór. Allsnaktar
stelpur dansa uppá borðinu meðan mar borðar.
21:30 Kynmök með þremur gullfallegum stelpum og allar földu myndavélarnar
virka fullkomlega
23:00 Nudd og svo í heita pottinn með stelpunum
23:45 Háttatími
23:50 Reka við stanslaust í 12 sekúndur og svo hátt að hundurinn hleypur
útúr herberginu
23:55 Sofna........EINN!!


» 25 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 13:03:41 / bosi

long time no see.............................

jæja,hef ákveðið að blogga,hef verið MJÖG latur við það undanfarið,en alla vega þá er ég á lífi,það gengur mjög vel í nýja húsinu hjá okkur famelíunni,og maður er altaf að vinna!!núna um helgina verður snocross hérna á egilsstöðum,nánar tiltekið á fjarðarheiði,verða 7 kanar aðkeppa og 1 þeirra er efstur á heimslistanum í snocrossi,þetta verður eflaust gaman,ekki ætla ég að missa af þessu,ekki vantar snjóinn,það verður svona warm upp hjá vini mínum honum kristó í dekkjahöllinni kl 21:30 á föstudag frír bjór,kynning á keppendum og hægt að versla sér fatnað,svo byrja herlegheitin kl 14:00 á laugardag snocrossball á iðavöllum um kvöldið,stebbi jak og co steini bjarka og ási guðna þið mætið ekki spurning!!!! commenta takk p.s verð miklu duglegri að blogga ef það verður commentað eitthvað andri A.K.A bósi ljósár

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7